föstudagur, júní 08, 2007
Jæja elskurnar mínar.
Það var nú meira fjörið heima hjá Þórunni síðasta laugardag! Takk kærlega fyrir mig! Manni var bara hlýtt í hjartanu eftir þetta.
Skulda ég ekki Þórunni pening? Reikningsnúmer takk!
Nú skulum við vera duglegri að skrifast á og hittast.
En ég ætlaði líka að segja til hamingju með afmælið við Mettu og Þórunni. Velkomnar á fertugsaldurinn (sem er víst ekki fyrr en maður er orðinn þrjátíuogeitthvað).
Edda þú ætlaðir að bjóða kerlingunum á hestbak! Hvenær? Segðu bara dagsetningu og svo komast þeir sem komast.
Sigga

mánudagur, apríl 23, 2007
Blessaðar stelpur ,
Ég og Anna María vorum að ákveða að halda svona matarpartý heima hjá mér í lok maí - byrjun júní. Þetta verður með mökum.... eða án, hehe. Allir leggja í púkk, einhverjar tvær fara að versla mat, aðrar tvær vín og svo hittumst við hérna og eldum á meðan kallarnir fara í pottinn með bjór eða eitthvað, hvernig líst ykkur á ??
KOMA SVO STELPUR, NÚ MÆTUM VIÐ ALLAR !!! ENGAR AFSAKANIR, OK ?
Set mjög bráðlega inn dagsetninguna.
Luv,
Þórunn
P.S. Sigga, hvernig var þetta með ammilið þitt, er okkur boðið ?

mánudagur, mars 26, 2007
Æji úps....ég ætlaði að blogga og það kom eitthvað með að maður gæti upgrade-að blogginu svo ég gerði það og þá kom einhver rosa prósess þar sem ég þurfti að opna email fyrir draumadísir og ég veit ekki hvað.
Lykilorðið er það sama og hér fyrir draumadisir@gmail.com
Nú erum við komnar með email! ha?
Er einhver sem kíkir ennþá hérna inn?
Og er ekki kominn tími á saumó?
SEF

sunnudagur, janúar 14, 2007
fimmtudagur, desember 28, 2006
Innilega til hamingju með prinsinn elsku Edda og Siggi. Nú hlýtur stóri bróðir að vera alveg í skýjunum, loksins fékk hann bróðir :)
Vonandi gengur allt vel hjá ykkur, sendi ykkur hlýja strauma og þið vitið af skiptiborðinu hehe!
Knús og kossar
Rósa

þriðjudagur, desember 12, 2006
Jæja smá breyting enn og aftur...
Nú er planið að fara á VOX klukkan 11:30 á mánudaginn, þann 18. des.

laugardagur, nóvember 25, 2006
Takk takk elsku Edda, þetta var alveg stórglæsilegt og ljúffengt hjá þér í gær!
Mætingin var 100% (allir nema þú Linda mín, en 100% af þeim sem búa hérna á Fróni). Jamm Metta besta mætti sem leynigestur og kom okkur heldur betur á óvart, frábært alveg hreint. Það lá við að Edda missti vatnið þegar hún opnaði fyrir henni hehe...
Næsti hittingur var ákveðinn, hann verður á VOX í hádeginu þann 14. desember (á fimmtudegi). Fínt að hittast aðeins á aðventunni, án þess að einhver okkar þurfi að vera að stressa sig að taka á móti gestum :)
Svo var ákveðið að Barcelona ferðin yrði í maí, vonum bara að sem flestar komi með!
KNÚS